VON Iceland var stofnað árið 2002 og er í dag ein stærsta og öflugasta matvælavinnsla landsins sem sérhæfir sig í framleiðslu á harðfisk, bitafisk, skífum og þurrkuðu gæludýrafóðri.
Notast er við sérhannaða framleiðsluaðferð sem þróuð var af stofnendum félagsins sem byggir á áratuga reynslu þeirra í framleiðslu á harðfik.
VON Iceland er leiðandi fyrirtæki í vinnslu og markaðssetningu á þurrkuðum fiskafurðum innanlands sem og erlendis og starfar eingöngu með öflugum og virtum aðilum á viðkomandi mörkuðum.
Markmið VON Icelaland er að auka harðfiskneyslu á Íslandi og erlendis með því að bjóða upp á holla og góða vöru sem ýtir undir heilbrigðan lífstíl og eykur lífsgæði.